Kvennatímar í vetur
Kvennatímar í tennis eru og hafa verið kl. 11:30-12:30 í hádeginu á mánudögum og vegna vinsælda þessa tíma þá er nú hægt að velja um að koma annað hvort á mánudegi eða á þriðjudegi kl. 11:30-12:30. Aðeins er þó hægt að mæta í annan tímann.
Í tímunum er spilaður tennis og eru annað hvort Milan Kosicky eða Jón Axel Jónsson tennisþjálfarar á staðnum og skipuleggja hverjar spila saman og þjálfa á einum vellinum og róterar hópnum.
Verð er kr. 1600 skiptið en þær sem eru með árskort í tennis þurfa ekki að greiða sérstaklega fyrir að mæta í kvennatíma. Þær sem eru einnig með fasta tíma í Tennishöllinni fá afslátt og fá tímann á 1100 kr. Kvennatímarnir eru kjörin vettvangur til að kynnast fleiri tenniskonum.
Allar konur eru velkomnar.



22/08 2011
Auglýsingaborði, Fréttir, Fyrir fullorðna, Námskeið, Á döfinni