Fastir tímar í vetur
Í Tennishöllinni er hægt að leigja sér fasta vikulega tíma í tennis yfir veturinn. Vetrartímabilið stendur frá 18.ágúst – 31. maí en hægt er að hætta eða gera breytingar um áramót. Ef þú vilt panta þér fastan tíma í tennis með vinum eða fjölskyldu er best að hafa samband sem fyrst og láta vita af áhuganum og skrá sig hjá okkur því erfitt getur verið að fá tíma með stuttum fyrirvara. Þeir sem fá ekki tíma sem hentar geta farið á biðlista.
Við hjá Tennishöllinni eru viss um það að ekki er hægt að koma sér upp betri venju en að vera með fastan vikulegan tíma í tennis. Sendu okkur línu með óskum um hvaða tímar henta þér.



29/12 2011
Auglýsingaborði, Fastir tímar, Fréttir, Fyrir fullorðna, Vallarleiga, Á döfinni