Tennisæfingar TFK, TFG og TFH í vetur
Tennisfélag Kópavogs, Tennisfélag Garðabæjar og Tennisfélag Hafnarfjarðar halda sameiginlegar tennisæfingar fyrir börn og unglinga í Tennishöllinni Kópavogi í vetur. Öll börn og unglingar eru velkomin. Hægt er að velja hversu oft viðkomandi æfir en mælt er með að allir séu a.m.k tvisvar í viku. Til þess að ráðstafa frístundastyrk þarf að skrá sig hjá viðeigandi tennisfélagi sem má finna neðst á síðunni, en ætlast er til að forráðamenn skrái iðkendur sjálfir í gegnum Nóra kerfið. Það er gert til þess að gæta að upplýsingar um tengilið séu réttar hverju sinni og veita forráðamönnum betri yfirsýn og utanumhald yfir æfingar iðkenda.
Yfirþjálfarar eru: Jón Axel Jónsson, Milan Kosicky.
Æfingar er hafnar.
Míni tennis fjör, 5-7 ára
-
- Laugardagar kl. 11:30-12:30
- Sunnudagar kl.12:30-13:30
- Miðvikudagar kl. 14:30-15:30
Æfingatímar fyrir 8-10 ára
-
- Mánudagar kl. 14:30-15:50
- Þriðjudagar kl. 14:30-15:30
- Miðvikudagar kl. 14:30-15:50
- Fimmtudagar kl. 14:30-15:50
- Föstudagar kl. 14:30-15:50
- Laugardagar kl. 16:00-17:30
- Sunnudagar kl. 14:50-16:10
Æfingatímar fyrir 11-13 ára
-
- Mánudagar kl. 14:30-15:50
- Þriðjudagar kl. 14:30-15:50
- Þriðjudagar kl. 15:50-17:10
- Miðvikudagar kl. 14:30-15:50
- Miðvikudagar kl. 15:50-17:10
- Fimmtudagar kl 14:30-15:50
- Fimmtudagar kl. 15:50-17:10 (takmarkað pláss)
- Föstudagar kl. 14:30-15:50
- Laugardagar kl. 16:00-17:30
- Sunnudagar kl. 14:50-16:10
Æfingatímar fyrir unglinga
-
- Mánudagar kl. 17:10-18:30
- Fimmtudagar kl. 17:10-18:30
- Föstudagar kl. 17:10-18:30
- Laugardagar kl. 16:00-17:30
- Sunnudagar kl. 16:10-17:30
Æfingatímar fyrir úrvalshóp
Skipting í úrvalshópa fer að nokkru leyti eftir ITN listanum sem sjá má á www.tennissamband.is . Hins vegar geta komið upp tilvik þar sem þjálfurum finnst listinn ekki henta til að skipta í hópa og gera það miðað við aðrar forsendur. Einnig getur verið að ákveðnir hópar fyllist og verða þá þjálfarar að færa menn á milli eins og þeir telja að verði best fyrir prógrammið í heild.
Ath: Þeir sem fara á úrvalsæfingar geta einnig skráð sig á aðrar æfingar.
Úrvalshópur 1
Best er að skráning í úrvalshóp 1 sé í samvinnu við Jón Axel yfirþjálfara
-
- Mánudagar kl. 15:50-17:10
- Þriðjudagar kl. 17:10-18:30
- Fimmtudagar kl. 17:10-18:30
- Föstudagar kl. 15:50-17:10
- Laugardagar kl. 12:30-14:30
Úrvalshópur 2-3.
-
- Mánudagar kl. 15:50-17:10
- Þriðjudagar kl. 17:10-18:30
- Fimmtudagar kl. 17:10-18:30
- Föstudagar kl. 15:50-17:10
- Laugardagar kl. 14:30-16:00
- Sunnudagar kl. 13:30-14:50
Æfingatímabilið er frá 1.febrúar til 6.júní þar sem síðasta tímabil var framlengt til loka janúar. Þeir sem vilja byrja strax í janúar geta þó gert það gegn 10.000 kr aukagjaldi. Best er að byrja að mæta á þær æfingar sem henta best, ræða við yfirþjálfarana um tímana og finna hvernig best er að hafa æfingatöfluna. Þegar hún er kominn á hreint þá þarf að skrá sig .
Hægt er að velja um fjölda æfingatíma og miðast upphæð æfingagjalda við fjölda tíma eins og sjá má á töflunni hér að neðan.
Fjöldi tíma á viku | Verð vor 2021 | |
1 – 1,5 klst | 41.900 kr. | |
2 klst | 52.900 kr. | |
2,1 – 3 klst | 64.900 kr. | |
3,1 – 4 klst | 78.900 kr. | |
4,1 – 5 klst | 89.900 kr. | |
5,1 – 6 klst | 99.900 kr. |
Systkinaafsláttur er 10% fyrir öll systkini. Æfingatímabilið er frá 1.febrúar til 6.júní þar sem síðasta tímabil var framlengt til loka janúar. Þeir sem vilja byrja strax í janúar geta þó gert það gegn 10.000 kr aukagjaldi.
Skráðu þig hér á Tennisæfingar:
Tennisæfingar fyrir Kópavogsbúa
Tennisæfingar fyrir Garðbæinga
Tennisæfingar fyrir Hafnfirðinga (kemur fljótlega)
Tennisæfingar fyrir önnur bæjarfélög
06/01 2021
Á döfinni, Auglýsingaborði, Fréttir, Tennisæfingar