Í boði eru tennisnámskeið fyrir byrjendur og lengra komna. Um er að ræða yfirleitt tveir tímar á viku. Aðeins fjórir til fimm einstaklingar eru á hverju námskeiði með einum þjálfara og ætti því hver og einn að fá góða athygli þjálfarans. Þessi námskeið eru bæði skemmtileg og lærdómsrík.
Í sumar munum bjóðum við upp á frábært tilboð, 10 tíma byrjendanámskeið í tennis og sumarkort á aðeins kr. 39.900-.
Við finnum tíma sem hentar þér því aðeins eru 4-5 á hverju námskeiði og er því um margar tímasetningar að ræða. Með því að vera einnig með sumarkort þá getur þú spilað eins oft og þú vilt [...]
Með sumarkorti í tennis getur þú spilað eins oft og þú vilt í sumar bæði á inni- og útivöllum Tennishallarinnar.
Verð á sumarkortum er:
Einstaklingskort: 24.900.- kr
Para- og fjölskyldukort: 18.450 kr á mann og börnin 16 ára og yngri spila frítt.
Þú getur byrjað að nota sumarkortið úti strax en frá 1.júní á innivöllum.
Sumarkortið gildir til [...]
Sumarstigakeppnin er góð leið til að fá fullt af æfingaleikjum í sumar. Keppnin er hugsuð sem æfingakeppni fyrir alla sem eru með sumarkort í Tennishöllinni í sumar eða eru að æfa Tennis í sumar. Keppnin hentar öllum spilurum á hvaða styrkleikastigi sem er og verður í upphafi skipt í riðla eftir ITN listanum. [...]
Kvennatímar í tennis eru í sumar kl. 12:00-13:00 í hádeginu á mánudögum og á miðviudagskvöldum kl. 20:00-21:00.
Í tímunum er spilaður tennis og eru annað hvort Milan Kosicky eða Jón Axel Jónsson tennisþjálfarar á staðnum og skipuleggja hverjar spila saman og þjálfa á einum vellinum og róterar hópnum.
Verð er 1600 kr. skiptið en þær sem eru með fastan tíma í tennis greiða [...]
Í Tennishöllinni er hægt að leigja sér fasta vikulega tíma í tennis yfir veturinn. Vetrartímabilið stendur frá 18.ágúst – 31. maí en hægt er að hætta eða gera breytingar um áramót. Ef þú vilt panta þér fastan tíma í tennis með vinum eða fjölskyldu er best að hafa samband sem fyrst og láta vita af [...]
Skipulagið á þessum tímum er þannig að spilað er upp og niður kerfi án uppgjafa og sá sem vinnur fer upp og sá sem tapar fer niður. Þetta er gott og skemmtilegt „workout“ Verðlagning er sú sama og á kvennatímunum. Það er skiptið kostar 1600 kr en ef menn eru með fastan tíma í tennis [...]
Á haustönn 2012 verður í boði tilboð til þeirra sem vilja spila einliðaleik á föstum tímum á milli 6-14:30 virka daga eða 22:30-23:30. Tveir tímar fást á verði eins ef aðeins tveir spilarar nota völlinn.
Tennis er mikil fjölskylduíþrótt og tennistími fyrir alla fjölskylduna einu sinni í viku er skemmtileg fjölskylduvenja og dýrmæt stund. Á hausttönn 2012 býður Tennishöllin fjölskyldum (aðeins fyrir pör og börn 18 ára og yngri) að fá sér fastan tennistíma á laugardags- og sunnudagsmorgnum frá kl. 8:30-11:30 eða á sunnudagskvöldum frá kl. 19:30-22:30 með 25% afslætti [...]
Hægt er að kaupa gjafabréf í tennis í Tennishöllinni. Gjafabréfið getur innihaldið tennistíma, tennisnámskeið eða einkatíma með þjálfara. Í Tennishöllinni er einnig gott úrval af tennisvörum á góðu verði frá Babolat og Dunlop sem eru tvö af bestu tennismerkjunum í dag. Það eru allir glaðir með að fá skemmtilega hreyfingu í jólapakkann sinn. Eigum nú [...]
Friday, April 26, 2013
Comments Off