A A

Tennis- og leikjaskólinn

Tennis- og leikjaskólinn fyrir börn 5-13 ára

Tennisskólinn 2010

Í sumar bjóðum við upp á stór skemmtileg námskeið fyrir alla krakka á aldrinum 5-13 ára. Þessi sumarnámskeið hafa verið mjög vinsæl hjá okkur í gegnum tíðina og eru þegar margir búnir að skrá sig. Hægt er að skrá sig hérna

Markmið námskeiðanna er að kenna undirstöðuatriði tennisíþróttarinnar í bland við skemmtilega bolta-, hlaupa- og tennisleiki auk þess sem spilaður er mini tennis. Ýmislegt annað er til gamans gert svo sem barnaeróbikk með skemmtilegri tónlist, ratleikur, tarzanleikur og fleira. Allir nemendur fá TFK bol og viðurkenningarskjal í lok námskeiðs. Í lok hvers námskeiðs er haldin grillveisla.

Hreyfiþroski og skipulag

Á hverju námskeiði er lögð áhersla á að auka hreyfiþroska barnanna og uppeldislega hollt umhverfi . Miðað er við að um það bil einn leiðbeinandi sé á hver 8 börn. Börnunum er skipt í hópa eftir aldri.

Hvert námskeið er þrjár vikur en hægt er að taka hluta af námskeiði t.d eina viku.

Námskeiðin eru sem hér segir:

  1. Námskeið 6. júní – 24. júní (einnig hægt að byrja 7,8 og 9.júní)
  2. Námskeið 27.júní – 15. júlí
  3. Námskeið 18. júlí – 5. ágúst
  4. Námskeið 2.ágúst – 19. ágúst

Tími og gæsla

Hægt er að taka námskeið sem stendur frá kl. 9:00 – 12:00 eða frá kl. 13:00 – 16:00 eða allan daginn. Börnin geta þó mætt í gæslu kl. 7:45 og verið í gæslu í hádeginu og til kl. 17:15. Gæslan er án endurgjalds.

Verð

Þriggja vikna námskeið hálfan daginn er kr. 19.900,- en heilan dag kr. 28.900,-. Ef tekin er hluti af námskeiði, þá er greitt fyrir hverja viku 9.500 kr hálfan daginn en 13.900 kr allan daginn. Systkinaafsláttur er 10% fyrir hvert barn.

Umsjón

Námskeiðin eru í umsjón Andra Jónssonar og Jóns Axels Jónssonar tennisþjálfara og íþróttastjórnunarfræðinga og landsliðsmanna í tennis og landsliðskvennanna Rebekku Pétursdóttur og Söndru Dísar Kristjánsdóttur.

Skráning og upplýsingagjöf er hafin í Tennishöllinni í síma 564-4030 og með því að senda tölvupóst á tennis@tennishollin.is, eða einfaldlega fylla út formið hér að neðan.

Nafn barns*

Kennitala barns*

Heimilisfang

Nafn foreldris*

Kennitala foreldris*

Heimasími

GSM sími

Netfang*

Námskeið

Ef fullt námskeið hentar ekki þá má velja hérna þær vikur er óskað er eftir

Tími

Athugasemdir

Vilt þú byrja að spila tennis? Við getum fundið rétta námskeiðið fyrir þig eða hóp. Skráðu þig hér og við verðum í sambandi og hjálpum þér að byrja í tennis.

Opnunartíminn í vetur
  • Mánudaga – Föstudaga 6:00 - 23:30
  • Laugardaga og Sunnudaga 8:30 - 22:30
  • Sími Tennishallarinnar er 564 4030
Nýjustu Flickr myndirnar okkar