Tennisakademian í sumar
Tennisakademian er hugsuð fyrir þá sem er nú þegar með ágætan grunn í tennis og vilja ná miklum framförum á stuttum tíma. Lögð er áhersla á íþróttamannslega hugsun og viðhorf, fótavinnu, tækni, herkænsku og þrek.
Yfirumsjón hafa Andri Jónsson og Jón Axel Jónsson.
Verð er 11.900 kr vikan hálfan daginn þ.e frá 9-12 eða frá 13-16 eða 17.900 kr allan daginn þ.e frá 9-16. Ekki fresta skráningu því aðeins 16 komast að í hverri viku. Þau sem taka þrjár eða fleiri vikur í tennisakademiunni geta tekið þátt á tennisæfingum á mánudögum-fimmtudögum kl. 16:30-18 í sumar án endurgjalds þær vikur sem þau eru ekki í tennisakademiunni.
Tennisakademian verður í gangi eftirfarandi vikur:
6-10. júní
13-16.júní (20% styttra og ódýrara)
20-24. júní
27.júní-1.júlí
4.-8.júlí
11.-15.júlí
2-5.ágúst (20% styttra og ódýrara)
8.-12. ágúst
15-19.ágúst
Fullorðnir sumarkortshafar geta tekið þátt í tennisakademiunni í júlí og ágúst.
Hægt er að nota skráningformið hér að neðan eða skrá sig með því að senda tölvupóst á tennis@tennishollin.is



